Verslunarskilmálar

Upplýsingar um seljanda

Heimasíðan / Netverslunin thorfridur.is (Hér eftir nefnd Slitgigtarskólinn) er í eigu og rekin af  Þórfríði slf., kt. 510419-0570, Þrastarrima 21 800 Selfossi.

Almennt

Eftirfarandi skilmálar gilda um viðskipti seljanda og kaupanda og notkun á netverslun Slitgigtarskólans. Um þjónustuviðskipti gilda skilmálar sem skilgreindir eru í lögum um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003. Í vefverslun Slitgigtarskólans eru í boði stök netnámskeið og hópnámskeið með upphafs- og lokadagsetningu. Slitgigtarskólinn áskilur sér rétt til að hætta við pantanir ef greiðsla hefur ekki borist þegar 24 klst eru þar til námskeið hefst. Einnig til að hætta að bjóða upp á ákveðin námskeið eða vörur fyrirvaralaust. Þjálfarar Slitgigtarskólans eru höfundar alls efnis sem keypt er í netverslun skólans og er efnið einungis ætlað til einkanota kaupanda. Dreifing á myndefni í heild sinni er með öllu óheimil nema með leyfi Slitgigtarskólans.

Verð

Öll verð í netversluninni er í íslenskum krónum og innihalda 24% vsk. Slitgigtarskólinn áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Netnámskeið og önnur fjarþjálfun fást ekki endurgreidd. Vinnustofur/fyrirlestrar og hóptímar fást að fullu endurgreiddir eða sem inneign í sambærilega vöru, geti þátttakandi af einhverjum ástæðum ekki tekið þátt á þeim tíma sem hann skráði sig í. Beiðni um endurgreiðslu skal send á netfangið thorfridur8787@gmail.com

Ábyrgðarskilmálar

Kaupandi skal kynna sér vel lýsingu á vöru og hvort viðkomandi æfingaprógramm henti miðað við heilsufarssögu og núverandi ástand. Slitgigtarskólinn og þjálfarar hans bera ekki ábyrgð á meiðslum eða öðru sem kann að koma upp á meðan æfingu stendur. Kaupandi er á eigin ábyrgð við framkvæmd æfinga. 

Afhending vara og kostnaður

Öll netnámskeið og fjarþjálfun eru send í tölvupósti á það netfang sem gefið er upp við pöntun innan við sólarhring frá því að greiðsla berst.

Greiðslur

Allar kortagreiðslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Valitor. Hægt er að greiða með öllum debit- og kreditkortum frá Visa og MasterCard.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Seljandi meðhöndlar persónuupplýsingar kaupanda í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000. Vafrakökur eru notaðar til þess að greina umferð um vefinn. 

Varnarþing

Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.