Slitgigtarskólinn-Álagsstig 2

Regular price
15.900 kr
Sale price
15.900 kr
Regular price
Uppselt
Verð
per 
VSK innifalinn.

Álagsstig 2- Æfingar gerðar á stól, standandi og með teygjum

  • Hentar einstaklingum sem geta staðið upp af stól án stuðnings
  • Verkir að ganga niður stiga
  • Geta gengið í c.a 20-30 mín en byrjar að verkja stuttu eftir það
  • Göngur í ójöfnu undirlagi eru krefjandi
  • Geta staðið upp liggjandi af gólfi, er þó erfitt og forðast það.
  • Taka inn verkjalyf af og til. Næturverkir sjaldgæfir

Á þessu 8 vikna námskeiði verður farið í fræðslu um slitgigt og síðan æfingar. Þú munt læra hvernig best er að byggja upp verkjaða liðinn og vonandi hjálpa þér í átt að bættri stoðkerfisheilsu. 

Áður en þú hefst handa við æfingar þá þarftu að kaupa útbúnað. Hér fyrir neðan er linkur sem þú getur ýtt á sem fer með þig inn á www.sportvorur.is

Útbúnaður sem þú þarft að kaupa eru ein rauð æfingateygja, einn æfingateygjuhringur- miniband ( val að kaupa) og pilates æfingahringur. Síðan er val að kaupa lóð. Það er hægt að kaupa t.d ódýr létt lóð í Tiger. Þú finnur það þegar þú byrjar að gera æfingar hvort þú viljir þyngja æfingar með lóðum eða ketilbjöllum Síðan er alltaf hægt að vera útsjónasamur og vera bara með þyngd í bakpoka.


Rauð teygja 
Pilates æfingahringur
Æfingateygjuhringur mini band
Ketilbjalla


Ef þú hefur áhuga á að kaupa sendu mér þá tölvupóst á thorfridur8787@gmail.com