Álagsstig 1- Æfingar gerðar á stól með teygjum og standandi með stuðningi:
- Að standa upp af stól nema með stuðningi
- Erfitt að ganga upp og niður stiga
- Jafnvægisleysi og byltubeygur
- Geta gengið í c.a 10-12min í senn á sléttu undirlagi. Verkur og úthaldsleysi hamlar göngu
- Eiga erfitt með að standa lengi.
- Geta ekki staðið upp liggjandi frá gólfi
- Fá næturverki af og til
- Taka oft inn verkjalyf
Á þessu 8 vikna námskeiði verður farið í fræðslu um slitgigt og síðan æfingar. Þú munt læra hvernig best er að byggja upp verkjaða liðinn og vonandi hjálpa þér í átt að bættri stoðkerfisheilsu.
Áður en þú hefst handa við æfingar þá þarftu að kaupa útbúnað. Hér fyrir neðan er linkur sem þú getur ýtt á sem fer með þig inn á www.sportvorur.is
Útbúnaður sem þú þarft að kaupa eru ein rauð æfingateygja, einn æfingateygjuhringur (mini-band, val að kaupa) og einn pilates æfingahringur. Síðan er val að kaupa lóð. Það er hægt að kaupa t.d ódýr létt lóð í Tiger. Þú finnur það þegar þú byrjar að gera æfingar hvort þú viljir þyngja æfingar með lóðum eða ketilbjöllum Síðan er alltaf hægt að vera útsjónasamur og vera bara með þyngd í bakpoka.
Rauð teygja
Pilates æfingarhringur
Æfingateygjuhringur- mini band
Ketilbjalla
Ef þú hefur áhuga á að kaupa sendu mér þá tölvupóst á thorfridur8787@gmail.com